Léttur 1996

Í mars 1996 tók Léttsveitin þátt í Gospeltónleikum með Kvennakór Reykjavíkur sem haldnir voru í Loftkastalanum við frábærar undirtektir landsmanna.

Sunnudaginn 6. október 1996 hélt Léttsveitin uppskeru- og kompukarnival á Ægisgötunni. Þar var seld fersk og spennandi uppskera, s.s. sultur, saft, kartöflur og rófur. Ennfremur drógu Léttsveitarkonur fram ýmislegt spennandi úr kompum sínum og kjöllurum og gerðu allir góð kaup þennan dag. Boðið var upp á rjúkandi kaffi og ilmandi vöfflur og Léttsveitin tók nokkur lög.

Þann 1. nóvember 1996 hélt Léttsveitin "Írskt skemmtikvöld" áður en haldið var til Dublin á Írland. Þetta var fjáröflun fyrir ferðina sem var fyrsta utanlandsferð Léttsveitarinnar. Boðið var upp á ýmsar uppákomur og léttar veitingar að hætti Léttsveitarinnar.

Fyrsta utanlandsferðin

Þann 19.nóv 1996 rúmu ári eftir stofnun Léttsveitarinnar voru haldnir tónleikar á Ægisgötunni. Flutt voru þau lög sem höfð voru í farteskinu á leið okkar til Írlands nokkrum dögum síðar, en það var okkar fyrsta utanlandsferð. Farið var til Dublin og sungið í tveimur kirkjum.

Ferðin heppnaðist í alla staði vel og konur kynntust betur og nánar. 


Efnisskrá tónleikana 


Léttsveitin þetta árið











Share this page